Það getur stundum verið erfitt að velja rétta spilið.
Á það að vera fyndið?
Á það að vera fyrir börnin?
Á það að henta í matarboð?
Eða á það bara að koma öllum aðeins af stað?
Við hjá Junior höfum alltaf reynt að búa til spil sem passa við ólíkar stundir. Sum spil eru fullkomin þegar fólk vill hlæja og hugsa hratt. Önnur henta betur þegar markmiðið er að spjalla, kynnast betur eða eiga rólega og góða stund saman.
Brain Freeze er til dæmis fyrir þá sem elska hraða, stress og hlátur.
Heita Sætið er frábært þegar fólk vill fá skemmtilegar spurningar og góð samtöl.
Krakka sætið er fyrir yngri spilara og fjölskyldur sem vilja leyfa börnunum að vera með.
Hjartsláttur hentar vel þegar fólk vill eiga hlýja, persónulega og fallega stund.
Og Brain Freeze Fótbolti er auðvitað fyrir þau sem elska fótbolta — eða þekkja einhvern sem gerir það.
Það er ekkert eitt rétt spil fyrir alla. Það fer bara eftir hópnum, stemningunni og tilefninu.
En eitt er sameiginlegt með spilunum okkar: þau eiga að vera einföld, skemmtileg og fá fólk til að vera aðeins meira saman.