Hlutur sem gefa okkur ástæðu til að tala saman

Hlutur sem gefa okkur ástæðu til að tala saman

Flest spilin okkar hjá Junior eiga rætur að rekja til einnar einfaldrar hugmyndar, að fá fólk til að setjast niður, tala saman og eiga góða stund.
Við lifum á tímum þar sem auðveldara er en nokkru sinni fyrr að vera í sambandi við annað fólk. Við getum sent skilaboð, deilt myndum og fylgst með lífi annarra allan sólarhringinn. Samt benda rannsóknir til þess að samskiptum augliti til auglitis hafi fækkað og að sífellt fleiri upplifi einmanaleika og skort á raunverulegum tengslum.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur meðal annars bent á að um einn af hverjum sex í heiminum upplifi einmanaleika. OECD hefur einnig greint að daglegum samverustundum með vinum og fjölskyldu hafi fækkað víða, á sama tíma og fjarsamskipti hafa aukist.

Það þýðir ekki að símar, samfélagsmiðlar eða tæknin séu óvinurinn. En það er munur á því að vera í stöðugu sambandi og að finna fyrir raunverulegri tengingu.
Einvera getur verið góð og jafnvel nauðsynleg. Einmanaleiki er hins vegar sú tilfinning að okkur vanti þau tengsl sem við þurfum. Við getum því verið ein án þess að vera einmana og við getum líka verið innan um fullt af fólki en samt fundið fyrir einmanaleika.

Þess vegna skiptir samtalið máli.

Ekki endilega stóru og alvarlegu samtölin. Stundum byrjar tengingin á einfaldri spurningu, óvæntu svari, sameiginlegri minningu eða hlátri sem enginn sá fyrir.
Það er einmitt það sem við viljum að gerist þegar fólk spilar Junior-spil.
Þegar við búum til spil hugsum við ekki aðeins um reglurnar, stigin eða hver vinnur. Við hugsum um hvað gerist í kringum borðið. Hvaða samtöl kvikna? Hvað lærir fólk hvert um annað? Hver fær tækifæri til að segja frá? Og getur spilið hjálpað fólki að gleyma símanum í smástund og vera raunverulega til staðar?

Í Heita sætinu og Krakka sætinu fá leikmenn tækifæri til að kynnast betur. Hjartsláttur getur kallað fram hlýjar, persónulegar og oft óvæntar umræður. Brain Freeze snýst meira um hraða, stress og hlátur — en þar verður líka til sameiginleg upplifun sem fólk tekur með sér.

Spilin eru ólík, en tilgangurinn á bak við þau er sá sami, að skapa tilefni til samveru.

Við ætlum ekki að halda því fram að eitt spil leysi einmanaleika eða öll vandamál nútímans. En við trúum því að litlar stundir skipti máli. Hálftími við eldhúsborðið. Hlátur með vinum. Samtal milli barns og foreldris. Spurning sem fær okkur til að uppgötva eitthvað nýtt um manneskju sem við héldum að við þekktum út og inn.

Kannski þurfum við stundum bara ástæðu til að setjast niður, horfast í augu og tala saman.

Back to blog