Skip to product information
1 Of 2

Junior

Bókatvenna

Bókatvenna

Regular price 6.500 ISK
Regular price Afsláttarverð 6.500 ISK
Afsláttur Uppselt
VSK innifalinn

Bækurnar GIRND og SJÚK saman í pakka
Höfundur: Þóra Sveinsdóttir

GIRND
Helga hafði allt: fjölskyldu, vini og frama sem tekið var eftir. En á bak við luktar dyr átti hún líka líf sem fáir vissu um.
Þegar hún finnst látin á heimili sínu virðist það í fyrstu vera slys - þar til sannleikurinn kemur smám saman í ljós.
Þórey og Páll hjá rannsóknarlögreglunni leita sannleikans en sálfræðingurinn Emma, sem sjálf á sína skuggafortíð, dregst inn í rannsóknina og greinir fljótt mynstur sem aðrir sjá ekki.
Hvað fær konu til þess að kúvenda lífi sínu og hverja dregur hún niður með sér í fallinu?
Girnd er ögrandi glæpasaga úr samtímanum sem sýnir lesandanum inn í heim ástríðna, háska og stjórnleysis, þar sem sannleikurinn getur orðið banvænn.

Sagan er sjálfstætt framhald spennusögunnar Sjúk.

SJÚK
Sálfræðingurinn Emma lifir hinu fullkomna lífi með manni sínum og dóttur þegar henni fara að berast nafnlaus skilaboð og lífi hennar er ógnað.
Nauðug er hún dregin inn í atburðarás sem átti sér stað fyrir rúmum fimm árum. Fortíðin lætur hana ekki í friði, sama hversu djúpt hún heldur að hún hafi grafið hana.
Erfið systir, giftir kærastar og eltihrellir flækja líf sálfræðingsins sem kemst að þeirri niðurstöðu að hún verði að taka málin í sínar hendur. 

Sjúk er fyrsta bók Þóru Sveinsdóttur. Hér er á ferðinni grípandi glæpasaga sem heldur lesandanum við efnið.

 

View full details